Virðulegur forseti. Sennilega er það svo að mönnum lætur misjafnlega að látast. En ég verð að spyrja hv. þm. sem hér talaði áðan einfaldrar spurningar: Hefur hann séð textann af erindaskiptunum sem undirrituð voru í Óportó? Hefur hann lesið skýrslu sem fram var lögð um það mál hér á hinu háa Alþingi? Sé svo, fer þá nokkuð á milli mála að í þessum undirrituðu erindaskiptum var kveðið á um skipti á veiðiheimildum? Ég kem því ekki inn í mitt höfuð að það geti hafa vafist fyrir nokkrum manni að skilja það. Þetta breytir engu um það að í ljósi þess sem áður hefur verið sagt, þar á meðal um ólíkt eðli karfa og hins duttlungafulla fisks loðnu, þá var því fylgt eftir í viðræðum við Evrópubandalagið að ganga lengra. Að því er niðurstöðurnar varðar þá liggja þær nú fyrir. Og að því er varðar mat hagsmunaaðila á þeim þá liggur það fyrir. Að því er varðar mat hæstv. sjútvrh. á því þá liggur það fyrir. Menn telja að niðurstaðan hafi verið viðunandi og sé viðunandi trygg. Um hvað eru menn að deila?
Samningar við EB um fiskveiðimál
69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 19:00:19 (2996)
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson)
(andsvar)
: