Forseti (Pálmi Jónsson)
:
Forseti vill taka fram að engum hv. alþingismanni hefur verið gefið sérstakt frí en nokkrir alþingismenn hafa fjarvistarleyfi, aðrir eru fjarstaddir vegna veikinda. Hér eru einnig í forsvari fyrir þessu máli af hálfu hæstv. ríkisstjórnar þeir hæstv. ráðherrar sem málið mest varðar. Ætlun forseta er að ljúka umræðunni á þessum fundi og verður henni fram haldið.