Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þær athugasemdir sem hér hafa komið fram um vinnuna fram undan í þinginu og benda hv. þm. á það að enn einu sinni er það ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar sem eru orsök þess að ekki er hægt að fjalla um mál hér með eðlilegum hætti samkvæmt þeirri áætlun sem legið hefur fyrir um störf þingsins alveg frá því að þing hófst í haust.
Það er ekki nokkur leið hjá hæstv. ráðherrum að kenna þingmönnum stjórnarandstöðunnar um að þeir tefji málin. Öll mál sem hér hafa verið lögð fram hafa fengið málefnalega og skjóta afgreiðslu. Og það hefur oftar en ekki verið að þakka okkur sem erum í stjórnarandstöðu þar sem við höfum í meira mæli verið að sinna störfum hér í þingsalnum heldur en stjórnarliðar sjálfir. Það er bráðum kominn hálfur mánuður síðan ríkisstjórnin kom fram með síðustu áætlanir sínar í efnahagsmálum og enn hafa þær áætlanir ekki verið útfærðar í frumvarpsformi. Það hefur nú þegar tekið ríkisstjórnarmeirihlutann langan tíma, hálfan mánuð, að ræða þessar tillögur. En það er ekki nema hálfur mánuður eftir af starfstíma þingsins til jóla. Á þeim tíma á að afgreiða öll þau mál sem þarf að ljúka fyrir áramót.
Það er ekki til fyrirmyndar fyrir löggjafarsamkomuna að sífellt sé verið að brjóta lög um vinnutíma og hvíldartíma. Samanber það að hér vorum við í nótt með fund til kl. eitt eftir miðnætti og margir þurftu að mæta aftur á nefndarfund í morgun kl. átta. Ég er ekki að segja að það sé slæmur starfsandi eða að vinnan gangi ekki eðlilega í fjárln. en ég ásaka ráðherra og stjórnarmeirihlutann sem heild fyrir það að þessar tillögur skuli ekki löngu vera komnar fram svo hægt sé að fara að vinna.