Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra grípur til þess ráðs að tala um jarðgangamál á Vestfjörðum. Ég skal ekki fullyrða nákvæmlega um hvernig það mál bar upphaflega að. Það var hins vegar ákveðið að fyrst yrði farið í göng til Ólafsfjarðar sem ég vænti að hæstv. ráðherra telji sig hafa haft einhver afskipti af sem stjórnarandstæðingur, það er eins og mig minni, hæstv. ráðherra, ( Samgrh.: Það var Lárus Jónsson.) að hann hafi talið sig hafa nokkur áhrif á málið, jafnvel þótt hann væri í stjórnarandstöðu. Ég skil hæstv. ráðherra þannig að hann óski ekki lengur eftir samstarfi við þingmenn kjördæmanna um þessi mál. Þá veit
maður það. Þá er að sjálfsögðu tilgangslaust að boða til fundar um þessi mál. Hæstv. ráðherra segist vera búinn að taka þetta í eigin hendur, hann vilji koma fram sinni stefnu og þurfi ekki að hlusta á einhverja þingmenn í kjördæminu í þessum málum. Hann þekki vel til vegastæðis á milli landshluta og hvernig þetta eigi allt saman að vera. Þá höfum við fengið þau skilaboð frá hæstv. ráðherra og tilgangslítið að vera með einhver formsatriði í því að kalla til þingmenn kjördæmanna. Það er þá best að hæstv. ráðherra hafi þetta allt á rúmstokknum hjá sér.