Vegáætlun 1992

72. fundur
Mánudaginn 07. desember 1992, kl. 13:38:08 (3085)

     Guðni Ágústsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Þingmenn Framsfl. greiða þessari þáltill. um breytingu á vegáætlun atkvæði sitt. Þingflokkurinn styður að það fjármagn sem sparaðist vegna hagstæðrar tíðar sl. vetur sé nú veitt til nýrra

þjóðvega til að standa undir kostnaði vegna nýrra útboða. Hins vegar mótmælir þingflokkurinn vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar eins og fram kemur í sérstakri bókun stjórnarandstöðunnar í fylgiskjali með nefndarálitinu.