Vegáætlun 1992

72. fundur
Mánudaginn 07. desember 1992, kl. 13:39:02 (3086)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Ég þakka þinginu fyrir þær góðu undirtektir sem tillagan hefur fengið. Hún er fyrsti liðurinn í víðtæku átaki sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að gera í samgöngumálum með því að 1,8 milljörðum kr. verði sérstaklega varið til samgöngumála sem liður í fjárlögum næsta árs og í atvinnumálastefnu ríkisstjórnarinnar.