Vegáætlun 1992

72. fundur
Mánudaginn 07. desember 1992, kl. 13:40:27 (3088)


     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Þar sem er um að ræða aukið fjármagn til vegagerðar þá mun ég styðja tillöguna þar sem ég er henni efnislega sammála enda þótt við í minni hluta samgn. séum ekki sammála þeirri meðferð sem málið í heild hefur fengið. Að öðru leyti styðjum við það að auka fé til vegagerðar ef kostur er.