Ný staða í EES-málinu

72. fundur
Mánudaginn 07. desember 1992, kl. 14:39:36 (3112)

     Páll Pétursson (um þingsköp) :
    Frú forseti. Ég vil ekkert útiloka að gott samkomulag geti tekist um þingstörfin á næstu vikum og ég tek undir þau orð sem þingflokksformaður Sjálfstfl. viðhafði hér áðan að menn eigi að nota tímann til að átta sig á stöðu mála. Sérstaklega held ég að það sé brýnt fyrir hæstv. utanrrh. eftir þá dæmalausu ruglræðu sem hann flutti í lok umræðunnar áðan að átta sig á stöðu mála og gera sér grein fyrir hverjar eru staðreyndir málsins og vera ekki hér með þetta fleipur.