Skattamál

73. fundur
Þriðjudaginn 08. desember 1992, kl. 19:51:34 (3160)

     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Það er aðeins örstutt, virðulegi forseti. Ég get tekið undir þetta. Þetta hefur reyndar verið gert og er gert. Ég minni á að bílar eru skattlagðir bæði eftir stærð, vélarrúmsstærð og eins eftir þyngd. Af þeim sem hafa stærra sprengirými eru borguð miklu hærri gjöld en hinum. Í sumum tilvikum er því farið eftir þessu, kalli þingmaðurinn það lúxus.