Skattamál

73. fundur
Þriðjudaginn 08. desember 1992, kl. 19:54:58 (3163)


     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég er sammála síðustu orðum hæstv. ráðherra. Fyrirtækin gætu gert þetta en það er ekki sjálfgefið að þau geri það. Þar sem engar kýr eru nú lengur heilagar vil ég bara benda á að þar sem þarna er fé að hafa væri e.t.v. nær að sækja það þangað en til þeirra sem ekki eru aflögufærir.