Hæstv. forseti. Ég kveð mér hér hljóðs um gæslu þingskapa út af fundahöldum í hv. Alþingi og nefndastörfum en eins og þingheimur veit er fyrirhugað að 2. umr. um fjárlagafrv. ríkisstjórnarinnar fari fram á morgun. Fjárln. er nú að ljúka störfum við undirbúning þeirrar umræðu en þá ber svo við að það
kemur fram í fjölmiðlum að áætlaður halli á fjárlagafrv. verði miklu meiri en ráð var fyrir gert áður og stefni í 8 milljarða kr. í stað 6 milljarða og heimildarmaður fyrir þessu er m.a. hv. formaður fjárln., Karl Steinar Guðnason.
Ég kvaddi mér líka hljóðs sl. föstudag út af þessu sama máli af því að þá var umræðan fyrirhuguð strax eftir helgina. Þá var algerlega óljóst enn hvernig stæði með framgang ákveðinna mála af hálfu ríkisstjórnarinnar sem ætlaði að spara 1.240 millj. kr. á útgjaldahlið frv. Þar að auki átti að setja 500 millj. kr. í atvinnuskapandi verkefni eins og viðhaldsverkefni sem ábyggilega eru þörf og brýn mál. Nú eftir helgina varð ljóst að af þessum 1.240 millj. mundu ekki sparast nema 800 millj. ef marka mátti samninga hæstv. ráðherra og niðurstöður þingflokka þeirra. Það sem liggur núna fyrir í fjárln. er hins vegar að við höfum ekki fengið brtt. fyrir nefndina um nema 250 millj. kr. af þessum 800 millj. kr. og þá hlýtur maður að spyrja: Hvað er enn í farvatninu? Hefur verið ákveðið að falla frá þessum hugmyndum um að spara þessar upphæðir, fyrst að sjálfsögðu 1.200 millj., síðan um 800 millj.? Eftir standa 250 millj. Að vísu hefur verið talað um það að landbrh. ætti að spara 100 millj. í viðbót. Hann hefur upplýst að hann geti hugsanlega náð 50 af því. Það er hins vegar engin tillaga um það enn þá fyrirliggjandi í fjárln. Félmrh. hefur talað um að ná 100 eða 110 millj. Það er engin tillaga um það heldur fyrirliggjandi og þær brtt. sem liggja því fyrir hjá nefndinni eru langt frá því að vera í nokkru samræmi við það sem áður hefur verið um talað. Auðvitað standast engar ákvarðanir hjá þessari hæstv. ríkisstjórn deginum lengur. Það virðist breytast dag frá degi. Það sem ákveðið var í gær er allt annað í dag og enn annað á morgun. Ringulreiðin virðist allsráðandi á stjórnarheimilinu og ég spyr því, hæstv. forseti: Er mögulegt að láta umræðu fara fram á morgun við þessar aðstæður þegar hv. þm. Karl Steinar Guðnason segir m.a. í viðtali við Dagblaðið í dag, með leyfi forseta:
,,Það er alveg ljóst að gera þarf miklu betur en til þessa varðandi niðurskurð ríkisfjármála ef sú niðurstaða sem stefnt er að í fjárlögum á að nást. Þetta gengur ekki svona.``
Þetta var tilvitnun í formann fjárln., hv. þm. Karl Steinar Guðnason, og ef það liggur fyrir að það þurfi að ganga enn frekar í niðurskurð, þá er það venjan að sá niðurskurður liggi fyrir við 2. umr., þ.e. breytingar á gjaldahlið eru alla jafnan teknar til meðhöndlunar við 2. umr. fjárlaga, en tekjuhliðin er venjulega látin bíða til 3. umr. Ef hins vegar eru enn í farvatninu mörg hundruð millj., kannski allt að 2 milljarða kr., þá væri nauðsynlegt að vita hvort umræðan getur farið fram á morgun.