Frú forseti. Málefni Háskólans á Akureyri heyra sem kunnugt er undir menntmrh. og hann hefur látið svohljóðandi svar í té að höfðu samráði við sjútvrn.
Ríkisstjórnin hefur stuðlað að því að í tengslum við Háskólann á Akureyri og sjávarútvegsdeild hans eflist fræðsla í sjávarútvegsgreinum, rannsóknir í sjávarútvegsgreinum og þróunarstörf í sjávarútvegsfyrirtækjum á Eyjafjarðarsvæðinu.
Fyrir um það bil ári lagði menntmrh. fram frv. til laga um Háskólann á Akureyri sem var samþykkt sem lög frá Alþingi í maí sl. Helstu nýmæli í þeim lögum er efling rannsóknastarfsemi við háskólann. Á grundvelli þeirra laga heimilaði menntmrh. sl. sumar að háskólinn kæmi á fót rannsóknastofnun en rannsóknir á sviði sjávarútvegs eru meðal helstu viðfangsefna hennar. Þá skipaði menntmrh. í maí 1991 þróunarnefnd Háskólans á Akureyri sem skilaði skýrslu í júní sl. Þar er gert ráð fyrir eflingu sjávarútvegsdeildar og lagðar fram hugmyndir um nýtt nám á sviði matvælafræði, sjávarlíffræði, umhverfisfræði og stuttar atvinnutengdar námsbrautir. Nám þetta yrði að einhverju leyti skipulagt í samvinnu við Háskóla Íslands og erlenda háskóla. Tillögur þróunarnefndar eru nú til umfjöllunar í Háskólanum á Akureyri.
Við stofnun sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri voru gerðir samstarfssamningar við rannsóknastofnanir sjávarútvegsins. Starfsemi Hafrannsóknastofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins á Akureyri er samofin sjávarútvegsdeildinni. Bæði húsnæði og starfsfólk er samnýtt að hluta. Samkomulag hefur m.a. tekist um að tiltekinn fjöldi sérfræðinga við rannsóknastofnanir sjávarútvegsins hafi kennsluskyldu við háskólann. Að dómi menntmrn. er þetta fyrirkomulag um margt til fyrirmyndar um samstarf háskólarannsóknastofnana atvinnulífsins og fyrirtækja. Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing milli Háskólans á Akureyri og Iðntæknistofnunar Íslands um samstarf. Ætlunin er að þetta samstarf verði á líkum nótum og samstarfið við rannsóknastofnanir sjávarútvegsins.
Sem dæmi um rannsóknaverkefni sem hafin eru á vegum sjávarútvegsdeildar og samstarfsstofnana má nefna rannsókn á vistfræði Eyjafjarðar, rannsókn á ungviði þorskfiska í Eyjafirði og rannsókn á tegundum, útbreiðslu og þéttleika þara í Eyjafirði.
Ýmis verkefni tengd sjávarútvegi hafa þegar verið unnin af Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, til að mynda afkomuathugun í rækjuiðnaðinum. Þá hefur Íslandsbanki lánað Rannsóknastofnun háskólans húsnæði þar sem komið verður upp þróunarsetri eða tæknigarði. Þar eru nú til húsa skrifstofur Fiskeldis Eyjafjarðar hf., Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda og gistifræðimanna.
Hafrannsóknastofnun hefur að eigin frumkvæði lýst yfir áhuga á að auka starfsemi sína á Akureyri og er slíkt mikill styrkur fyrir háskólann og þá sérstaklega sjávarútvegsdeildina. Einnig hefur verið rætt við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins um aukna starfsemi í tengslum við þróunarverkefni fyrirtækja í fiskiðnaði. Menntmrn. og sjútvrn. hafa fyrir sitt leyti stutt aukið samstarf Háskólans á Akureyri við rannsóknastofnanir sjávarútvegsins.
Ekki hefur verið mörkuð stefna um ný rannsóknasvið við sjávarútvegsdeild en áhugi er á að taka upp samstarf við alþjóðlegar rannsóknastofnanir sem sinna umhverfisrannsóknum á norðurslóðum. Einnig er æskilegt að Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri verði gert kleift að stunda sjálfstæðar rannsóknir tengdar atvinnulífi landsbyggðarinnar og þá sérstaklega sjávarútveginum.
Menntmrh. hefur í samráði við sjútvrh. ákveðið að skipa nefnd til að endurskoða löggjöf og skipulag sjávarútvegsfræðslu í landinu. Þessi tvö ráðuneyti munu beita sér fyrir því að sú nefnd hafi í störfum sínum hliðsjón af þeim vilja Alþingis að á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu verið rannsókna- og fræðslustarfsemi á sviði sjávarútvegs efld enn frekar.
Varðandi spurningu um fjárveitingar til að tryggja áðurnefndri þál. brautargengi er meginatriði að þær stofnanir sem fyrir eru á svæðinu og eiga þátt í að sinna umræddu hlutverki fái nægjanlegar fjárveitingar til þess að sinna því.
Þrátt fyrir verulegan niðurskurð á sviði ríkisfjármála hækkar fjárveiting til Háskólans á Akureyri samkvæmt fjárlagafrv. úr tæplega 133 millj. kr. í tæplega 153 millj. kr. eða um 15%. Aukin framlög til sjávarútvegsdeildarinnar eru í réttu hlutfalli við þessa aukningu og eru í samræmi við þá stefnu sem Alþingi hefur markað og fyrirspyrjandi hefur vitnað hér til.