Efling Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðis sem miðstöðvar fræðslu á sviði sjávarútvegs

77. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 10:59:08 (3242)


     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegur forseti. Hér leyfir hæstv. sjútvrh. sér það í síðara skipti sem hann hefur rétt til að tala að bera þungar ásakanir á menn. Það er ekki sama hvernig ríkið aflar tekna. Hér hafa náttúrlega átt sér stað miklar umræður um þessa tekjuöflunarleiðir ríkisins sem snúast fyrst og fremst um það að skattleggja almenning í landinu meðan breiðu bökunum er hlíft. Því vil ég mótmæla þessum ummælum. Ég tek þetta til mín hér eins og aðrir stjórnarandstæðingar að það sé verið að gagnrýna niðurskurðinn hjá ríkinu --- það er nefnilega ekki sama hvað er gert eða hvernig hlutirnir eru gerðir.