Páll Pétursson
(um þingsköp)
:
Frú forseti. Mér finnst vanta inn í þessa þingskapaumræðu og vil beina því til frú forseta að áminna ráðherra um það að svara skilmerkilega þeim spurningum sem eru settar fram með formlegum hætti og nægum og eðlilegum fyrirvara samkvæmt þingsköpum. Það var ekki gert nú að mínu mati. Svarið við fsp. var út í hött. Þrátt fyrir það að hæstv. ráðherra hafi fullkomið vit til þess að svara þessari spurningu skilmerkilega þá kaus hann að svara því út í hött að aðstæður væru misjafnar. Síðan tekur hann fram í annarri ræðu að viðkomandi lögreglustjórar fari að lögum. Ef þeir gera það allir þá gilda ekki ein lög í landinu og það er meinið. Þetta tel ég að hæstv. dómsmrh. þurfi að fara ofan í og svara því skilmerkilega hvernig á því stendur að sömu reglur eru ekki látnar gilda alls staðar og finna því stoð í lögum. Ég tel, frú forseti, að það þurfi að ganga eftir því við ráðherrana og það sé forseta að gera það að þeir svari eðlilega fram bornum spurningum með skikkanlegum hætti. Auðvitað getur alltaf komið upp í umræðum að ráðherrar séu spurðir þannig að þeir hafi ekki svör á reiðum höndum og þá er að taka því. En ég tel að þessari spurningu sé ekki fullsvarað og það þurfi þá að bera fram aðra fsp. um hliðstætt efni til þess að fá ítarlegri svör um þetta vandamál sem hér var reifað af hv. 5. þm. Vestf.