Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Þessi orð mín þýða alveg nákvæmlega það sem þau segja, þ.e. að ráðstöfunarfé Rannsóknasjóðs á árinu 1993 verði 165 millj. kr. Þetta kemur hins vegar ekki fram í fjárlagafrv. og skýringin er sú að það verður látið reyna á það hvort þær 50 millj. sem vantar upp á það sem segir í fjárlagafrv. nást líka af sölu ríkisfyrirtækja. Ég hef lagt fram tillögur í ríkisstjórninni þess efnis að málið verði tekið upp að nýju á árinu 1993 ef í ljós kemur að þetta fé fæst ekki af sölu ríkisfyrirtækja. Það þýðir með öðrum orðum að það mundi þá væntanlega koma á fjáraukalögum á árinu 1993. Við þurfum að geta svarað því núna hvort Rannsóknasjóður hefur þetta ráðstöfunarfé í raun og veru. Það þarf Rannsóknaráð að vita þegar í upphafi árs. Þetta er skýringin. Hina tillöguna um 300 millj. hef ég skýrt áður.