Ólafur Þ. Þórðarson
(um þingsköp)
:
Herra forseti. Ég hef aldrei vitað að það væri sérstaklega beðið eftir ósk um slíkt atriði heldur væri föst regla að forseti leitaði eftir afbrigðum ef tillögur kæmu fram. Eftir að hafa hlustað á hv. 4. þm. Vestf. minnast á nauðsyn þess að auka ekki á halla ríkissjóðs, þá taldi ég sjálfgefið að forseti mundi taka því fegins hendi fram kæmi slík tillaga og leitaði eftir afbrigðunum. En er hæstv. forseti í vafa um að menn gegni þingskyldu og séu til staðar, m.a. fjárln., sem hlýtur að vera á næstu grösum og vel upp lögð til að greiða atkvæði?