Fjárlög 1993

79. fundur
Föstudaginn 11. desember 1992, kl. 11:17:21 (3341)

     Ragnar Arnalds :
    Virðulegi forseti. Heimamenn hafa sótt á það aftur og aftur að mega hefja hönnun heimavistarhúsnæðis við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki, en þetta hefur ekki náð fram að ganga af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Þessi tillaga er að sjálfsögðu flutt til þess að koma þessari byggingu af stað þó að menn geri sér grein fyrir því að ekki komast byggingaframkvæmdir í fullan gang fyrr en byggingu bóknámshúss er lokið. En það þarf alltaf að byrja á því að hanna eins og allir vita og það tekur sinn tíma. Því er fullkomlega tímabært að hefja það nú þegar. Ég tel mjög nauðsynlegt að vekja athygli á þessu máli og greiða fyrir því. Ég segi já.