Umræða um Evrópskt efnahagssvæði

80. fundur
Laugardaginn 12. desember 1992, kl. 13:13:43 (3400)

     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Ég hef ekki skipulagt neina giftingu. Ég vil láta það koma fram út af orðum hv. þm. Geirs H. Haarde, 8. þm. Reykv., að ég á engan þátt í því samkomulagi að tekið sé fyrir í dag frv. til laga um Evrópskt efnahagssvæði. Ég óskaði hins vegar eftir því mjög eindregið, eins og reyndar fleiri þingflokksformenn, að á fundi í dag gæfi utanrrh. skýrslu um för sína til Genfar og stöðu málsins. Ég á engan þátt í því að dagskrá er prentuð með þeim hætti sem hér er gert.