Umræða um EES og ummæli utanríkisráðherra

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 14:00:35 (3442)


     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Ég tel heppilegra og líklegra til að stytta umræður um þingsköp að forseti svari strax og úrskurði svo fljótt sem verða má þegar þingmenn beina í þingskapaumræðum spurningum til forseta eða óska eftir úrskurði um tiltekin atriði. Það er einmitt ráðið til að stytta þingskapaumræður. Hér kom úrskurður um að forseti telji að dagskrármálið sé þingtækt. Ég er ósamþykkur þeim úrskurði og vísa til þess sem ég hef áður sagt.