Evrópskt efnahagssvæði

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 14:40:58 (3462)

     Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Það eru fréttir að hæstv. forseti hyggst kveðja saman formenn þingflokka til þess að ræða málin. Hvers vegna kveður hæstv. forseti ekki formenn þingflokka þegar til umræðu um þessi mál og um þinghaldið? Það hefur ekkert komið fram af hálfu hæstv. forseta um hvernig forseti og forsætisnefnd þingsins hyggur að störfin gangi hér fyrir sig til jóla. Það hefur ekkert heyrst um það. Ég vil spyrja hæstv. forseta að því og gerði það reyndar fyrr í umræðunni: Hvernig er störfum forsætisnefndar þingsins háttað? Með hvaða hætti tekur forsætisnefnd þingsins, sem er æðsta stjórn þingsins, á þessum málum? Ég bið hæstv. forseta um að greina okkur frá því hvernig á þessum málum er haldið af hálfu forsætisnefndar sem forseti Alþingis leiðir.