Evrópskt efnahagssvæði

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 14:53:47 (3468)

     Geir H. Haarde (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég hef kannski ekki talað nægilega skýrt áðan, mér heyrðist það á síðasta ræðumanni. Ég var einmitt að útskýra það hvers vegna samkomulagið frá því í vor náði ekki fram að ganga og ég hef ekki kennt stjórnarandstöðunni um það. Ég tel ekki að neinn hafi brotið það samkomulag.
    Annað samkomulag um þessi mál hefur ekki legið fyrr eins og fram hefur komið nema það sem reynt var að gera vegna óska frá hv. formanni Framsfl. um að hefja umræðuna öðru hvoru megin við þessa helgi.