Evrópskt efnahagssvæði

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 14:54:33 (3469)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 8. þm. Reykv. fyrir þessa yfirlýsingu. Það er rétt, hann talaði ekki nógu skýrt. Ég tel mig hafa þokkalega meðalgreind og ég skildi hann eins og ég gerði og það voru fleiri hér sem vildu fá skýr svör. Við höfum fengið þau nú og ég virði það við hv. þm. Ég vona að vafa hafi verið eytt í hugum fleiri og ég er fegin að fá þessa yfirlýsingu úr þessum stóli.