Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég bar fram spurningu sem ég bað virðulegan forseta fyrir hlé að koma á framfæri við hæstv. utanrrh. þar sem ráðherrann ræðir ekki lengur við þingið. Ég treysti því að sá forseti, sem þá var, hafi komið þeirri spurningu á framfæri en hún var efnislega í þá veru hvaða tímatakmörk það eru sem hæstv. utanrrh. hefur. Hvenær er fyrirhugaður sá fundur forsvarsmanna EFTA-ríkjanna þar sem hann telur sig þurfa að vera mættur með niðurstöðu Alþingis í málinu? Þetta segi ég, virðulegi forseti, vegna þess, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, að ég sem nefndarmaður í hv. efh.- og viðskn. veit hvað liggur fyrir okkur hér þannig að hægt sé að afgreiða nauðsynlegustu mál fyrir áramót og taldi þess vegna nauðsynlegt að við þingmenn fengjum að vita hvaða forsendur væru fyrir því að það þyrfti að keyra þessa umræðu fram núna. Mig grunar að höfuðástæðan sé sú að hæstv. ríkisstjórn vilji breiða yfir það að öll mál, sem tengjast fjárlögum og skattamálum, eru óklár og þingið mundi vera nánast starfslaust næstu tvo til þrjá daga ef þessi umræða væri ekki í gangi.
Þess vegna, virðulegi forseti, vil ég fá svar hvort ekki hefur verið leitað eftir svörum við þessari spurningu við hæstv. utanrrh. í því hléi sem gefið var áðan.