Varamaður tekur þingsæti

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 13:10:19 (3534)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 14. des. 1992:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í einkaerindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþingmaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Sigurður Þórólfsson bóndi, Innri-Fagradal, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``

    Undir þetta bréf ritar 2. þm. Vesturl., Ingibjörg Pálmadóttir. Sigurður Þórólfsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.