Afgreiðsla fjárlagafrumvarps

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 13:40:56 (3539)

     Karl Steinar Guðnason :
    Frú forseti. Það er alveg ljóst að okkur er ekkert að vanbúnaði að hafa umræðuna t.d. á föstudaginn. Hv. síðasti ræðumaður veit að öll efni standa til þess. Ég sagði áðan að störf í nefndinni gengju vel og það er rétt. Nokkur áhersluatriði eru eftir. Við munum vinna þá stund sem eftir er að frv. og fyllsta ástæða til að anda bara rólega þangað til.