Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 22:07:32 (3577)


     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. 1. þm. Austurl. fyrir yfirlýsinguna. Það hefur farið fram hjá mér hafi hann sagt þetta beinum orðum. Ég heyrði ekki betur en hann segði ,,ég get ekki staðið að honum`` og þess vegna var það sem ég óskaði eftir að fá þessa skýringu. Ég fagna þeirri yfirlýsingu sem hann gaf hér áðan og er honum algerlega sammála í þessu efni sem hann lét koma fram um fiskveiðisamninginn.