Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 00:17:01 (3598)


     Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
    Herra forseti. Ég veit ekki hvort ég á að taka til mín þær skammir sem hv. þm. bar hér fram, en það stendur fyrr í þessu plaggi, sem las reyndar ekki -- að þetta væri lögfræðilegt álit. Mig minnir að hæstv. utanrrh. hafi nefnt tvo lögfræðinga til sögunnar en ég þori ekki að fullyrða um nöfnin en það voru Lilja Ólafsdóttir og Stefán Már Sefánsson. Það getur vel verið að þau hafi verið fleiri. Þetta voru þau tvö nöfn sem ég man eftir að hann nefndi í ræðu sinni áðan.
    Að öðru leyti er ekki getið um annað í þessu plaggi, sem ég er hér með undir höndum, en að það sé lögfræðilegt álit.