Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 00:35:48 (3607)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti hefur hlustað með athygli á athugasemdir hv. 2. þm. Vestf. og hann hefur komið þeim á framfæri.
    Varðandi spurningu hv. þm. um það hversu lengi áætlað er að halda áfram þingstörfum í nótt, þá vill forseti upplýsa að enn er fylgt dagskrá þessa fundar eins og hún hefur verið boðuð. Forseta sýnist vera á mælendaskrá ekki færri en 11 hv. þm. Það verður því ekki séð annað en það verði að halda áfram svo að hv. þm. fái tækifæri til þess að flytja sitt mál og fá þeir til þess þann tíma sem þeir óska. Forseta er mjög ljúft að verða við þeim óskum og halda áfram störfum svo lengi sem nauðsynlegt er.