Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 00:46:03 (3614)

     Eyjólfur Konráð Jónsson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Hér er mikill vandi úr höndum að leysa úr þeirri klemmu sem virðist vera komin, en er þó kannski einfaldara en sýnist. Það er ósköp einfalt mál að spyrja þá hv. þm. sem eru á mælendaskrá hvort þeir séu ekki reiðubúnir að fresta sínu máli til morguns.