Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að mér finnst það vera tímamótatilkynning úr forsetastóli um miðnæturskeið að á nærri því sama sólarhring og hæstv. forsrh. hafði lýst yfir að það kæmi til greina að skammta þingmönnum tíma kemur sú yfirlýsing frá starfandi forseta að hann muni berjast gegn því og ég fagna því að sjálfsögðu mjög.
Varðandi það ef hér á að halda áfram fram eftir nóttu, þá vil ég benda á að mjög mikilsvert starf er unnið í fjárln. þingsins þessa dagana og hún mun eiga að hefja störf kl. 8.30 í fyrramálið. Í framhaldi af því á hluti fjárln. og samgn. að þinga kl. 10, einnig vegna þeirra mála sem nauðsynlegt er að afgreiða á morgun vegna 3. umr. fjárlaga. Ég sé því ekki fram á það ef þingstörf eiga að halda áfram mjög lengi enn að hægt verði að sinna þessum nefndastörfum í fyrramálið.
Ég vildi aðeins vekja athygli hæstv. forseta á þessu máli og vona að hann hafi góðan skilning á því.