Hæstv. forseti. Það er nú söknuður að því að hæstv. utanrrh. skuli farinn utan en það gladdi mig þó að það var í opinberum erindum, að hvorki þolið né þvagfærin höfðu brugðist. Ég segi það nú vegna ummæla hv. þm. Össurar Skarphéðinsson að 97 ræður í
þingsköpum segja okkur það að samkomulag hefur ekki tekist við hæstv. forseta eða forsætisnefnd í þessu máli. Og það er auðvitað miður að þinginu skuli hafa verið hleypt upp í þessar deilur og ekki leitað eftir því að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um þetta stóra mál. Ég vil lýsa því yfir að við eigum margir eftir að ræða um EES-samninginn og höfum ekki enn tekið þátt í þeirri umræðu. Það eru tugir þingmanna sem enn hafa ekki tekið þátt í þeirri umræðu, töluðu ekki við 1. umr. og það mál hefur ekki enn verið mikið rætt hér í þinginu. Og ég sá það haft eftir hæstv. utanrrh. í Dagblaðinu í dag að hann hafði lítið við þá umræðu að athuga. Við eigum eftir að halda málefnalegum umræðum áfram um EES-málið og við verðum að fá frelsi til þess. En við sættum okkur ekki við þriðja næturfundinn í röð og við ræðum ekki málið á meðan hæstv. utanrrh. er erlendis hvort sem hann hefur rætt það við forustumenn þingflokkanna eða ekki. Það hefur ekki verið rætt við okkur sem ekki höfum tjáð okkur í málinu.
En við hæstv. forseta vil ég segja það að margir bera það traust til hæstv. forseta Alþingis, frú Salome Þorkelsdóttur, að hún með sterkri hendi verji löggjafarþingið og tryggi það að opinská og hreinskiptin umræða um samninginn um EES fari hér fram. Við þær aðstæður sem nú blasa við, Sviss hefur fellt og það er ekki hægt að lögtaka samninginn, þá er það skoðun margra manna að forseti þingsins eigi að taka frumkvæðið og fresta þessari umræðu fram yfir áramót. Ég hygg að margir horfi til forsetans í þessu efni því að það verður að ræða samninginn um EES og hann verður að vera hafinn yfir pólitík, hann verður að vera hafinn yfir misskilinn persónulegan metnað einstakra ráðherra, hafinn yfir allan þrýsting erlendis frá. Það er alvarlegt ef kröfugerð og fyrirmæli frá EFTA- og EB-þjóðum vega þyngra og verða látin ráða því að málinu skuli þröngvað hér í gegn og gert að lögum þótt færustu prófessorar segi að íslensk lög leyfi ekki að þetta lagafrv. verði afgreitt frá Alþingi í óbreyttri mynd, hvorki með samþykkt eða synjun eins og hér kom fram í gær. Þess vegna set ég nú enn traust mitt á hæstv. forseta Alþingis, að hún gæti þess að hún er forseti alls þingsins og að sumu leyti forseti allrar þjóðarinnar í þessu máli.