Framhald umræðna um EES og fjarvera utanríkisráðherra

84. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 14:00:54 (3636)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Frú forseti. Vegna þeirrar umræðu sem hv. 4. þm. Austurl. hóf um skammvinna fjarveru hæstv. utanrrh. frá þessari umræðu vil ég láta það koma alveg skýrt fram að för hans var ekki afráðin fyrr en hann hafði gengið úr skugga um að forustumenn stjórnarandstöðuflokkanna, bæði formenn þingflokka og formenn flokka, mundu ekki gera athugasemd við þessa fjarvist sem stafar af embættisskyldum hans í öðru landi. Þá kom það líka fram að þeir mundu beita sér fyrir því að þessi fjarvist sætti ekki athugasemdum. Þetta hefur reyndar verið staðfest hér bæði af hv. 8. þm. Reykn. og hv. 1. þm. Norðurl. v. Ég vona þess vegna að þetta eigi ekki að tefja þessa umræðu og hún geti haldið áfram.