Evrópskt efnahagssvæði

84. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 16:25:09 (3645)


     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Mér finnst kenna nokkurra hártogana í málflutningi hv. 3. þm. Reykv. Ég bað um þetta álit löngu áður en úrskurður féll hjá forseta. Það var ekki orðið við því. Ég margbað um að málinu yrði skotið til Lagastofnunar. Sú röksemd stenst því ekki að mínu mati að úrskurður forseta hafi komið í veg fyrir að þessi spurning væri borin fram. Ég skil ekki af hverju stjórnarliðinu finnst þessi einfalda spurning sem ég vildi leita til Lagastofnunar með eitthvert tabú. Það er eins og ekki megi minnast á þetta.