Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hv. þm. fagnaði þeirri samstöðu sem náðst hafði í Alþb., ef ég skildi málið rétt, um hans leið í málinu. Þeirri samstöðu hefur verið lýst best af fyrrum aðstoðarmanni hv. 8. þm. Reykn. sem einhvers konar skólabókardæmi um pólitískar hundakúnstir og hringlandahátt. En ég vildi ekki ræða það frekar heldur vildi ég spyrja þingmanninn vegna þess að ég tel að hann tali af mikilli alvöru og byggi upp sitt mál mjög vel eins og kunnugt er, þótt menn séu ósammála afstöðu hans. Hann talar um þetta mál sem mikið alvörumál. Nú er þetta mál þannig vaxið að það er hægt að taka aðildarveru Íslands, ef samþykkt verður, til endurmats og segja samningsaðild upp með 12 mánaða fyrirvara. Telur hv. þm. að Alþb. muni ganga í ríkisstjórn án þess að gera kröfu til slíkrar uppsagnar?