Evrópskt efnahagssvæði

84. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 01:04:40 (3671)

     Guðni Ágústsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Þar sem þetta er þriðja nóttin, sem hér stendur til að halda næturfund og er nú mjög erfitt að sætta sig við og nokkuð óvenjulegt að það séu þrír næturfundir í röð, þá vil ég spyrja hæstv. forseta að því hvort það sé samstaða um það í forsætisnefnd að þessum fundi verði fram haldið í nótt?