Evrópskt efnahagssvæði

84. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 03:00:32 (3684)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill taka það fram að sá sem hér stendur var rétt í þessu að koma í forsetastól og fylgdist eigi grannt með orðum hv. 5. þm. Norðurl. e. Almennt skal það tekið fram að andsvör eru til þess ætluð að svara þeim ræðumanni sem síðastur var í ræðustól og ekki til þess ætlast að það sé sérstaklega verið að víkja að máli annarra hv. þm. eða öðru efni. Nú hefur hv. 5. þm. Norðurl. e. óskað að bera af sér sakir.