Tilkynning um utandagskrárumræðu

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 14:30:11 (3712)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en atkvæðagreiðsla hefst vill forseti upplýsa að hér er fyrirhuguð utandagskrárumræða sem mun hefjast kl. 3.30. Því miður hefur ekki tekist að tilkynna þetta fyrr vegna þess að fundum hefur verið frestað öðru hvoru og er komið svolítið fram yfir þann tíma sem eðlilegt hefði verið að tilkynna um utandagskrárumræðu.
    Utandagskrárumræðan er að beiðni hv. 18. þm. Reykv. og er um atvinnuleysið og aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þetta verður hálftíma umræða sem hefst kl. 3.30.