Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Það hefur um langt árabil verið grundvallaratriði í stjórnarstefnu ríkisstjórna á Íslandi að viðhalda fullri atvinnu og það er brennt inn í íslenska þjóðarsál að svo skuli vera. Því er eilítið sorglegt að þurfa að ræða þetta mál við hæstv. félmrh. sem væntanlega er sá ráðherra ríkisstjórnarinnar sem tekur þetta mest nærri sér og ræður minnstu þar innan dyra um ferðina í atvinnumálum og þeirri helstefnu sem núv. hæstv. ríkisstjórn framfylgir. Það hlýtur að vera vægast sagt sorglegt fyrir hæstv. félmrh. að bera þann titil í þeirri ríkisstjórn á Íslandi sem fær þau eftirmæli að hafa verið sú sem innleiddi atvinnuleysið. Því miður sjáum við ekkert í dag í aðgerðum núv. hæstv. ríkisstjórnar sem horfir til betri vegar. Þvert á móti höfum við í höndum bréf frá stærsta verkalýðsfélagi landsins þar sem það er búið að beina sjónum sínum að því máli númer eitt að koma ríkisstjórninni frá því fyrr en það verði gert verði ekki ráðin bót á atvinnuleysinu.
Ég ætla ekki að fara hér með einstakar tölur en vil þó benda hæstv. ríkisstjórn á það, sem hefur séð ástæðu til að verja hálfum milljarði til atvinnuskapandi aðgerða í einum landshluta, að sá landshluti þar sem atvinnuleysi hefur aukist mest á síðustu vikum, og þar er ekki um staðbundið eða tímabundið atvinnuleysi að ræða, það er Eyjafjarðarsvæðið og Norðurland.