Umboðssöluviðskipti

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 17:59:42 (3759)

     Svavar Gestsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Hv. formaður þingflokks Alþfl. og hv. formaður þingflokks Sjálfstfl. skýrðu mér frá því fyrr í dag að ætlunin væri að ræða um Evrópskt efnahagssvæði síðdegis á milli kl. 5 og 6 ef nokkur kostur væri. Ég tók það trúanlegt og þar með að hæstv. viðskrh. yrði viðstaddur. Þess vegna er bersýnilegt að ekki hafa farið hrein skilaboð á milli manna og það harma ég þegar menn eru að leggja sig fram um að vanda sig við afgreiðslu mála.