Varamaður tekur þingsæti

86. fundur
Föstudaginn 18. desember 1992, kl. 11:02:01 (3775)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf:
    ,,Þar sem Matthías Bjarnason, 1 þm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda leyfi ég mér með tilvísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Guðjón A. Kristjánsson skipstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstfl.``


    Guðjón A. Kristjánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.