Skuldbreytingar vegna loðdýraræktar

86. fundur
Föstudaginn 18. desember 1992, kl. 18:00:18 (3796)

     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) :
    Virðulegi forseti. Frv. þetta er flutt að ósk landbrh. og byggist á áliti nefndar sem fjallað hefur um fjárhagsvanda loðdýrabænda. Frv. felur í sér að Stofnlánadeild landbúnaðarins eru veittar heimildir til að fella niður sem svarar helmingi af heildarskuldbindingum loðdýrabænda við Stofnlánadeild landbúnaðarins.

    Búist var við því að þessi nýja búgrein gæti að einhverju marki komið í stað þess óhjákvæmilega samdráttar sem orðið hefur í hefðbundnum greinum landbúnaðarins á síðustu árum og þannig treyst búsetu á landsbyggðinni. Verðfall á loðdýraafurðum hefur hins vegar leitt til mikils vanda í þessari grein. Þegar lög nr. 112 frá árinu 1989 voru sett hafði loðdýrarækt búið við mikinn rekstrarvanda um nokkurt skeið. Í greinargerð sem þessum lögum fylgdi segir að þau miði að aðgerðum í þágu loðdýraræktarinnar sem auðvelda skuli einstökum loðdýrabændum að taka ákvörðun um framtíðarbúrekstur sinn. Því miður hefur ekki tekist sem skyldi að létta fjárhagsstöðu greinarinnar. Þess er vænst að með þessu frv. sé fundin leið til að treysta grundvöll loðdýraræktarinnar þannig að sú þekking og reynsla sem fengist hefur varðveitist og nýtist þegar betur árar.
    1. gr. gerir ráð fyrir að síðari málsl. 2. gr. laganna um skuldbreytingar vegna loðdýraræktar falli niður en í staðinn fyrir komi sú árétting sem 1. gr. felur í sér.
    Ég vil svo, virðulegur forseti, leggja til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr.