Virðulegi forseti. Sérstakur tekjuskattur manna er 5% skattur sem leggst ofan á tekjur einstaklinga sem eru 200 þús. kr. og hærri hjá einstaklingum og 400 þús. kr. hjá hjónum. Þetta kallar ríkisstjórnin hátekjuskatt. Það er ljóst að Sjálfstfl. er á móti þessum skatti en telur hann nauðsynlegan af sálfræðilegum ástæðum. Tekjuöflun sem beinist að þeim sem betur mega sín er mun réttlátari en ýmislegt annað sem lagt er til í frv. þessu þótt tillagan skili reyndar litlu, en í framkvæmd er verið að hverfa til fyrri hátta í innheimtu skatta og mun það m.a. bitna á sjómönnum.
Stjórnarandstaðan telur rétt að ríkisstjórnin beri pólitíska og sálfræðilega ábyrgð á sinni skattastefnu og mun því sitja hjá við þennan kafla laganna.
Skattamál
87. fundur
Laugardaginn 19. desember 1992, kl. 13:02:35 (3891)
Kristín Ástgeirsdóttir
: