Steingrímur J. Sigfússon
:
Hæstv. forseti. Ég vil fara fram á það að það mál sem nú var verið að vísa til 3. umr. verði tekið til umfjöllunar í efh.- og viðskn. á milli umræðna. Fyrir þessu get ég fært ýmis rök ef þörf þykir. Bæði var það að málið var þannig unnið að ýmsar upplýsingar komu mjög seint eða alls ekki til efh.- og viðskn. áður en 2. umr. hófst. Meiri hlutinn ákvað að gera viðamiklar breytingar á síðustu klukkutímum áður en það var afgreitt úr nefnd. Við fulltrúar stjórnarandstöðunnar og jafnvel stjórnarliðar einnig áttum þess ekki kost að skoða þær breytingar á grundvelli gagna í ýmsum tilvikum bæði frá fjmrn. og Þjóðhagsstofnun.
Ég tel einnig að í umræðum um málið í gærkvöldi hafi komið fram upplýsingar og sjónarmið sem geri það að verkum að eðlilegt sé að efh.- og viðskn. komi saman á nýjan leik og fari yfir þetta mál. Ég hygg að ég þurfi ekki að vísa þar til neins sérstaks sem fram kom í umræðunni. En þeir sem fylgdust með henni átta sig væntanlega á því hvað ég er að fara.
Enn fremur er það svo, hæstv. forseti, að ég lít svo til að sú venja hafi skapast og liggi í raun og veru í anda hinna nýju þingskapa, þar sem þingið starfar nú í einni málstofu, að ef óskað er eftir því að nefnd taki meiri háttar mál til umfjöllunar á nýjan leik á milli 2. og 3. umr. þá sé jafnan orðið við því. Þannig að ég kem þessari ósk hér með á framfæri, hæstv. forseti, bæði til hæstv. forseta og eins til formanns efh.- og viðskn.