Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra gagnrýndi mig fyrir að hafa sagt að hann hafi svarið rangan eið í kirkju þegar hann lýsti því yfir að þessi tekjustofn yrði óskertur við næstu fjárlagagerð. Ég held að ég fari rétt með að ég hafi sagt að hann hafi svarið rangan eið á kirkjuþingi. Það má vera að kirkjuþingið hafi verið haldið í kirkju. Mér er ekki kunnugt um það. En það er alveg ljóst að hæstv. fjmrh. lýsti því þar yfir orðrétt að við fjárlagagerð næsta árs verður þessi tekjustofn óskertur ,, . . . eins og ég skýrði biskupi fyrir nokkru frá að í undirbúningi væri.`` Þetta voru orð ráðherrans á kirkjuþingi og þau standa. Þannig að hæstv. ráðherra getur ekki verið að bera þau af sér. Það verður svo að koma í ljós hvort þetta kirkjuþing var haldið í kirkju eða ekki. Hafi það verið haldið í kirkju þá er þetta enn verra, hæstv. ráðherra, ég er sammála því.
Síðan fer hæstv. ráðherra að leggja út af því að verið sé að tala um kirkjugarðsgjald og það komi kirkjunni nánast ekkert við. Þetta er mjög furðuleg kenning. Það er leitt að hv. þm. Sigríður A. Þórðardóttir, prestsfrú í Mosfellsbæ, skuli vera gengin úr þingsalnum. Hún ætti að geta upplýst hæstv. dóms- og kirkjumrh. rækilega um það að slíkt er nú nábýli kirkjunnar í Mosfellsbæ og kirkjugarðsins. Að allur aðbúnaður og aðkoma að kirkjunni í Mosfellsbæ er auðvitað hluti af kirkjugarðinum. Þannig að endurbætur á því sviði tengjast kirkjunni beint. Ég held að ég fari rétt með að endurbyggingu Fossvogskapellu, sem gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi þjóðkirkjunnar, hafi verið fjármögnuð með kirkjugarðsgjöldum. Það verður þá leiðrétt a.m.k. að einhverju leyfi ef rangt er með farið. Þannig er auðvitað með fjölmörgum hætti hægt að tengja saman fjármuni kirkjugarðanna og kirknanna eins og bara þessi tvö dæmi um tvær kirkjur hér í nágrenninu sýna.