Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson)
(andsvar)
:
Herra forseti. Það ætti að vera óþarfi að minna hv. 8. þm. Reykn. á að Fossvogskirkja er ekki sóknarkirkja heldur útfararkirkja. Í annan stað þá veit hv. þm. að þær umræður sem fóru fram þegar hann ætlaði að skerða sóknargjöldin snerust fyrst og fremst um sóknargjöldin. Og andstaða kirkjunnar sem fram kom á þeim tíma var mest þeirra vegna. Hv. þm. veit að eftir að sú grein var skrifuð sem hann var að vitna til þá tókst samstaða, m.a. í þingliði þáv. stjórnarflokka, um að knýja hann og þáv. ríkisstjórn frá því að skerða sóknargjöldin. Það er bæði honum og öðrum ljóst að það voru þær ráðagerðir sem mestum deilum ollu. Hitt er líka ljóst og hefur aldrei verið dregin nein dul á að kirkjugarðsgjöldin voru kirkjunni viðkvæm. Og þess vegna hefur verið unnið að breytingum í samræmi við þá meginstefnu sem ég hef hér lýst. En hv. þm. getur ekki lokað augunum fyrir því að það voru sóknargjöldin sem hér var fyrst og fremst um að tefla þegar þær greinar voru skrifaðar sem hann vitnaði til. Og árangur þeirra greinaskrifa og annarrar umræðu bæði hér á Alþingi og úti í þjóðfélaginu leiddu til þess að hann varð að hverfa frá þeim áformum sínum og sá árangur vannst í þeirri umræðu.