Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 15:59:52 (3992)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill vekja athygli á því að það er ekki rétt prentað atkvæðagreiðsluskjalið hvað varðar brtt. 511,1--2 en það kemur vonandi ekki að sök. (Gripið fram í.) --- Leiðréttingu á þessari síðu atkvæðagreiðsluskjalsins hefur verið dreift á borð þingmanna.