Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 16:02:21 (3993)

     Gunnlaugur Stefánsson :
    Virðulegi forseti. Hér er ekki verið að gera tillögu um að hækka sjálfa fjárveitingu heildarliðarins, þá verður að skerða aðrar íþróttahreyfingar sem tillaga hefur nú þegar verið gerð um og samþykkt af hálfu Alþingis, ef þessi tillaga verður samþykkt. Spurningin er sú hvort þá eigi að skerða framlög til íþróttamála fatlaðra, hvort skerða eigi framlög til íþróttafélaga annarra og þess vegna spyr ég hv. flm. um það hvar hann vilji leggja til að skera niður þegar hann mun gera grein fyrir atkvæði sínu hér á eftir sem ég er viss um að hann geri. Ég segi því nei.