Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 16:16:49 (4001)


     Kristín Ástgeirsdótir :
    Virðulegi forseti. Í ljósi þess að verið er að lækka persónuafslátt einstaklinga og leggja skatta af ýmsu tagi á fjölskyldur í landinu, þá er sjálfsagt að leita leiða til að lækka útgjöld á öðrum stöðum og í ljósi þess hve friðvænlega horfir nú í heiminum, þá segi ég já.