Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 16:29:29 (4005)

     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Hér er verið að biðja um 5 millj. kr. til að unnt sé að hrinda þessu verkefni af stað eða halda því áfram eins og hafið var á síðasta ári. Við umræður kom fram frá formanni þingflokks Alþfl. efnislegur stuðningur við þetta mál. Formaður þingflokksins er jú doktor í geldfiskum og hann hefur einnig skilning á því að það þurfi að styðja rannsóknir þótt tveir komi við sögu og ég hafði gert mér vonir um það að a.m.k. þingflokkur Alþfl. styddi þetta mál og fylgdi formanni sínum. Ég segi já.