Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 17:08:04 (4024)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta finnst ekki nógu gott ef hv. þm. eru farnir að hefja hér almennar umræður, efnislegar umræður. Það getur alltaf verið álitamál hver eigi að hafa síðasta orðið. (Gripið fram í.) Forseti getur ekki neitað hv. 9. þm. Reykv. um eitt orð en biður hv. þm. enn að taka tillit til óska forseta og hefja ekki almennar umræður meðan á atkvæðagreiðslu stendur.